Refund policy
Við hjá Colden viljum að viðskiptavinir séu ánægðir með kaupin sín. Ef þú skiptir um skoðun getur þú skilað vöru samkvæmt skilmálunum hér að neðan.
1. Skilaréttur
Viðskiptavinir hafa 14 daga skilarétt frá þeim degi sem varan er afhent. Þetta á við um vörur sem keyptar eru í vefverslun okkar á colden.is.
2. Skilyrði fyrir skilum
Til að vara sé samþykkt í skil þarf hún að vera:
- ónotuð,
- óskemmd,
- í upprunalegum umbúðum,
- með öllum fylgihlutum, merkjum og leiðbeiningum,
Við áskiljum okkur rétt til að hafna skilum ef varan hefur verið notuð, skemmd eða ef upprunalegar umbúðir/fylgihlutir vantar.
3. Hvernig skila ég vöru?
Til að skila vöru skal hafa samband við okkur innan 14 daga frá afhendingu með tölvupósti:
Netfang: coldenwatches@gmail.com
Vefsíða: www.colden.is
Vinsamlegast sendu eftirfarandi upplýsingar:
- nafn,
- pöntunarnúmer,
- hvaða vöru þú vilt skila,
- ástæðu skila, ef þú vilt gefa hana upp.
Eftir að við höfum móttekið beiðnina sendum við þér leiðbeiningar um hvernig skilaferlið fer fram.
4. Sendingarkostnaður vegna skila
Viðskiptavinur ber almennt ábyrgð á sendingarkostnaði við að skila vöru, nema varan sé gölluð eða röng vara hafi verið send.
Varan er á ábyrgð viðskiptavinar þar til hún hefur borist okkur.
5. Endurgreiðslur
Þegar vara hefur borist okkur og verið yfirfarin, látum við þig vita hvort skilin hafi verið samþykkt.
Ef skilin eru samþykkt verður endurgreiðsla framkvæmd.
Endurgreiðsla fer fram eins fljótt og auðið er og eigi síðar en innan 14 daga frá því að við fáum tilkynningu um að viðskiptavinur vilji falla frá kaupum.
6. Gallaðar eða rangar vörur
Ef þú færð gallaða vöru eða ranga vöru, vinsamlegast hafðu samband við okkur eins fljótt og hægt er.
Sendu okkur pöntunarnúmer og myndir af vörunni/gallanum svo við getum leyst málið. Ef varan reynist gölluð eða röng munum við bjóða upp á nýja vöru eða endurgreiðslu eftir því sem við á.
7. Vörur sem ekki er hægt að skila
Ekki er hægt að skila vöru ef:
- varan hefur verið notuð eða skemmd af viðskiptavini,
- upprunalegar umbúðir eða fylgihlutir vantar,
8. Skipti á vöru
Ef þú vilt skipta vöru, til dæmis í aðra gerð eða lit, skaltu hafa samband við okkur á coldenwatches@gmail.com. Skipti eru háð birgðastöðu hverju sinni.